Æfingatímar og þjálfarar
| Þjálfarar: |
Netfang: |
Síma nr.: |
|
Halldór Jón Halldórsson (Dóri) |
8947625 |
|
|
Sigríður Þorláksdóttir Baxter |
7725557 |
|
|
Heiður Vigfúsdóttir |
6152265 |
|
|
Hildur Jóna Gunnlaugsdóttir |
8617799 |
|
|
|
|
Rúta fer frá íþróttahúsinu, Egilsstöðum þriðju-, miðviku og fimmtudaga.
Mæting í rútu kl.: 16:15. Takmörkuð sæti eru í rútu og ef rúta er fullsetin þurfa foreldrar að skiptast á að keyra og verður útbúinn akstursáætlun fyrir foreldra til að skrá sig á .
Þjálfarar í Krílaskóla og Yngsta hóp eru Heiður Vigfúsdóttir og Hildur Jóna Gunnlaugsdóttir.
Í krílaskóla eru 3-5 ára krakkar sem eru orðnir nokkuð sjálfbjarga á skíðum, geta bjargað sér sjálfir í litlu lyftunni og brekkunni. Markmiðið í krílaskólanum er að allir hafi gaman af skíðmennskunni og verði betri skíðamenn. Í vetrarlok eiga allir að geta bjargað sér í stóru lyftunni og skíðað í brekkunum þar.
Á æfingum hjá Yngsta hóp er lögð áhersla á leik og þjálfun í frjálsri skíðun, en einnig er farið í brautir. Allir í hópnum verða að geta bjargað sér í stóru lyftunni og brekkunum þar.
Þjálfarar í Miðhóp og Elsta hóp eru Halldór Halldórsson, Hildur Jóna Gunnlaugsdóttir og Sigríður Þorláksdóttir Baxter.
Miðhópur og Elsti hópur samanstendur af krökkum sem hafa æft markvisst skíði í a.m.k. 1-2 ár og hafa náð færni til að fylgja hópnum eftir.
Athugið að börn eru á skíðum á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Nauðsynlegt er að foreldrar yngri barna og þeirra sem eru að byrja séu á staðnum meðan æfingar fara fram. Skylt er að nota hjálm við æfingar


